Tjald, naglalakk í stíl og hamsturshjól
Ekkert að þakka:) já heyrðu myndirnar! þad er forrit sem heitir hello from picasa. http://hello.com/how_bloggerbot_works.php skráir þig þar sem notanda og getur þa tengt það beint við síðunna þina og þær sem þu ert skráð á! svo bara fikta!
Ég er búin ad fá næsta landshluta samþykktan þannig eg er á fullu ad undirbúa felt. Planið er ad taka vesturland og vestfirði næst! þannig eg kem við hja vinum okkar á barnum á ísafirði. Aldrei ad vita ad ég taki bleika skyrtu með mer bara svona til að vera í stíl eins og síðast. Það eru um 40 stöðvar sem eg ætla ad komast yfir ad þessu sinni þannig planið er ad fara amk 3 ferðir. það verður svo yndislegt ad komast út! nú er bara að leggjast á skeljarnar og byðja um góða tíð þannig ég krókni ekki í tjaldi einhversstaðar.. spurning um ad leigja ser gimp til ad halda á mer hita!! EÐA ekki.. Ég er svo ad sjá þetta fyrir mer.. hlakka svo til ad fara.. þannig eg sé mig fara og vera í tjaldi og allt eitthvað voðalega nátturulegt... á eftir að sjá það gerast!! ég á mjög líklega eftir ad fara inn á næsta sveitabæ.. leita uppi símasnúrunna til ad koma mer í internet samband! og naglalakka mig svo um kvöldið, med geisladisk í spilaranum og med rafmagnshitaða kaffið mitt! finnst ykkur ekki þetta sennilegri saga????
Framundan! Eg get ekki lýst þvi öðruvísi en ad það stefnir allt í geðveiki á laugardaginn. það er eg sem sagt versus 13 stykki af 9 ára stelpum í afmælis brjálæði í 4 tíma. það virðist vera sem einhver takki í þessum skvísum fer á on og allt verður kreisí þegar þær mæta í afmælisveislur. Öll samskipti fara fram á mjög hágum nótum og þær æpa til skiptis og hlaupa í hringi.. allar í röð. svo grætur afmælisbarnið þvi hún fær ekki að ráða ÖLLU!! Dettur helst í hug ad fá svona hamsturs hjól og setja þær inní þad.. losa þessa orku! Það sem er mest brilljant við þetta allt saman er ad veislan fer fram í fjölsk.og húsdýragarðinum þannig það verður hægt ad sleppa þeim lausum. Það verða pylsur á grillinu þannig endilega komiði og hjálpið mér ad halda geðheilsunni.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home